1 / 18

Hversu lengi mun Reykjavík vaxa?

Framtíð borga 4. apríl 2003. Hversu lengi mun Reykjavík vaxa?. Ásgeir Jónsson Hagfræðistofnun. Leyndardómur þéttbýlismyndunar felst í þeim samlegðaráhrifum sem nálægðin skapar. Það þýðir að 1+1 eru stærri en tveir. Þéttbýliskraftarnir þrír Stærðarhagkvæmni (economies of scale)

brent
Download Presentation

Hversu lengi mun Reykjavík vaxa?

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Framtíð borga4. apríl 2003 Hversu lengi mun Reykjavík vaxa? Ásgeir Jónsson Hagfræðistofnun

  2. Leyndardómur þéttbýlismyndunar felst í þeim samlegðaráhrifum sem nálægðin skapar. Það þýðir að 1+1 eru stærri en tveir. Þéttbýliskraftarnir þrír Stærðarhagkvæmni (economies of scale) Breiddarhagræði (economies of scope) Flutningskostnaður (transportation costs) Hvaða þættir stjórna vexti Reykjavíkur?

  3. innri stærðarhagkvæmni einstakra fyrirtækja Lækkun meðalkostnaðar með aukinni framleiðslu hjá einu fyrirtæki. => skýrir ekki þéttbýlismyndun ytri stærðarhagkvæmni innan einstakra atvinnugreina Hópefli myndast vegna nálægðar og þekkingarflakks á milli þeirra sem hafa sömu hugðarefni og vandamál til lausnar. => skýrir myndun sérhæfðra kjarna. ytri stærðarhagkvæmni á milli ólíkra atvinnugreina. Umsvif í einni grein smita yfir í aðrar. Mörg ólík fyrirtæki skapa saman stóran markað fyrir vörur og framleiðsluþætti. „Hér lifir hvað á öðru“ => skýrir myndun stórra fjölþættra borga. 1) Stærðarhagkvæmni

  4. Ytri stærðarhagkvæmni skiptir höfuðmáli fyrir nýtingu menntunar og mannauðs til verðmætasköpunar. Með því að hópast saman geta fyrirtæki nýtt betur eigin mannauð auk þess að njóta mannauðs annarra fyrirtækja. Mannauðsmyndun er það sem raunverulega ræður stærð borga. (Black og Henderson 1997) Byggðin er að þéttast um allan heim vegna aukinnar menntunar og mannauðsfrekari framleiðslu. Þýðir þó ekki að risaborgir breiði vængi sína yfir lönd heimsins, heldur að borgir og byggðarkjarnar séu að mynda nánara og þéttara net – á þéttbýlum svæðum. Reykjavík er helsta mannauðsmiðstöðin hérlendis. Stærðarhagkvæmni og þéttbýlismyndun

  5. Breiddarhagræði skapast vegna fjölbreytni atvinnuhátta og er forsenda fyrir nýsköpun og sérhæfingu. Í öllum löndum myndast sérhæfingarmynstur á milli borga þar sem viðfangsefni þeirra fara eftir stærð þeirra. Svipuð lögmál að verki og ráða alþjóðaviðskiptum. Stórborgir henta fyrir starfsemi sem krefst margvíslegra framleiðsluþátta og skilar margbreytilegum afurðum. Smærri bæir henta aftur á móti fyrir staðlaða framleiðslu. Fyrirtæki hafa þó í auknum mæli aðskilið starfsemi sína. Höfuðstöðvarnar, með rannsóknum, markaðssetningu og stjórnun, eru staðsettar í stórborgum. Framleiðslan sjálf fer fram í minni og sérhæfðari kjörnum. Af þessum sökum hefur framleiðslusvæði borga víkkað út á síðari árum. 2) Breiddarhagræði

  6. Breiddarhagræði er einnig forsenda fyrir nýsköpun sem leiðir saman ólíkar hugmyndir og verklag. Til þess að finna ódýrustu framleiðsluaðferð og söluhæfustu hönnunina þarf víða að leita fanga. Loks þegar lausn er fundin er hægt að bregða stöðlum á framleiðsluna og fjöldaframleiða hana. Duranton og Puga (2001) kalla fjölþættar borgir móðurstöðvar (e. nursery cities) þar sem nýjar vörur og ný vinnubrögð fæðast. Reykjavík er sá staður á landinu sem kemst næst að vera fjölþætt borg eða móðurstöð. Reykjavík ætti því að vera aflvél hagvaxtar á Íslandi og allir staðir á landinu hagnast betur á sterkri höfuðborg en veikri með réttri sérhæfingu. Breiddarhagræði og þéttbýlismyndun

  7. Borgir myndast til þess að spara flutnings- og samskiptakostnað hjá fólki og fyrirtækjum Lækkun flutningskostnaðar dreifir úr atvinnulífi borga og minnkar vægi miðbæja. Borgir geta þó aðeins komist á legg ef flutningskostnaður til og frá þeim er nægilega lágur svo þær geti þjónað umhverfi sínu og átt viðskipti við önnur borgarsvæði. Lækkun flutningskostnaðar með tilkomu sjósamgangna eftir 1880 var forsenda fyrir þéttbýlismyndun á Íslandi. Borgir hafa ákveðið áhrifasvæði eða bakland sem afmarkast af flutningskostnaði. Lækkun flutningskostnaðar styrkir þjónustuhlutverk stærri þéttbýlisstaða á kostnað þeirra minni, en gefur jafnframt rúm fyrir sérhæfingu. 3) Flutningskostnaður

  8. Á fyrri helming tuttugustu öld gerðist tvennt: Þéttbýlismyndun komst verulega af stað með tilkomu strandsiglinga árið 1876. Strandsiglingar komu í stað járnbrauta sem tíðkuðust í öðrum og þéttbýlli löndum. Afleiðingarnar voru tvíþættar: Þéttbýlismyndunin beindist að stöðum á kjálkum og annesjum sem voru í þjóðbraut og komust í hringiðu hagvaxtar og framfara á Íslandi. Reykjavík byggðist upp sem miðstöð sjósamgangna með góð tengsl við útlönd og sjávarbyggðirnar, en lítil tengsl við nærumhverfi sitt á landi vegna vegaleysis. Flutningskostnaður og þéttbýlismyndun

  9. Á síðari helming tuttugustu öld gerðist tvennt: Strandsiglingar lögðust af og vegasamgöngur tóku við. Sjávarbyggðirnar urðu afskekktar og losnuðu úr tengslum við Reykjavík og annað þéttbýli á landinu. Almenn bílaeign, bættir vegir og lægri aksturskostnaður hefur tengt Reykjavík betur við nærumhverfi sitt. Afleiðingarnar eru tvíþættar: Fólki hefur fækkað verulega í sjávarbyggðum og á ystu oddum vegakerfisins. Búseta í kringum Reykjavík hefur sífellt verið að styrkjast. Flutningskostnaður og þéttbýlismyndun

  10. Hlutfall landsmanna í hafnarbyggðum og í byggðum við alfaraleið utan höfuðborgarsvæðisins.

  11. Setjum upp einfalt líkan með stærðarhagkvæmni og flutningskostnaði. Skiptum landinu upp í 12 svæði, líkt og klukku. Skiptum atvinnugreinum í tvennt: Iðnaður sem nýtur stærðarhagkvæmni. Landbúnaður sem er háður staðbundnum þáttum. Gefum okkar að öll svæði byrji með jafnmikið af fólki og fyrirtækjum. Lækkum síðan flutningskostnað. Skoðum nú þéttbýliskraftana þrjá, saman.

  12. Iðnaðurinn safnast fyrir á tveim stöðum, andspænis hvorum öðrum. En lega og fjarlægð kemur í veg fyrir að annar kjarninn nái að yfirtaka þjónustuhlutverk hins. Á endanum gerist það …

  13. Breytingar á búsetu 1980–2000ef landinu er skipt niður eins og klukku

  14. Þegar þéttbýlis-myndun er komin af stað heldur hún áfram af sínu eigi afli. Á sama hátt ef fólksfækkun er komin af stað getur hún líka haldið áfram af sama afli. Sjálfnærandi hringrás

  15. Reykjavík óx mjög hratt í byrjun tuttugustu aldar og við lok stríðsins bjuggu 40% þjóðarinnar í höfuðstaðnum. Þetta hlutfall hefur haldist nær óbreytt síðan og mun svo áfram. Nágrannasveitarfélögin hafa hins vegar stækkað á þessum tíma og runnið saman með bílavæðingu og lægra eldsneytisverði og mun svo áfram. Í framtíðinni mun búsetunetið umhverfir höfuðborgina verða sífellt þéttriðnara og ná lengra út. Nú þegar býr 75-80% þjóðinnar í klukkutíma fjarlægð frá Rvík. Þetta hlutfall gæti hækkað í 90% með búferlaflutningum sem færa fólkið nær eða með vegabótum sem færa staðina sjálfa nær. Mörkin á milli borga, bæja og munu verða óljósari á þessum klukkutíma radíus frá Reykjavík. Upp rís eitt, samþætt, þéttbýlt svæði með mörgum sérhæfðum kjörnum sem allir tengjast innbyrðis. Vöxtur Reykjavíkur

  16. Hlutfall þjóðarinnar sem býr í Reykjavík og nágrenni.

  17. Fólksflutningar síðustu ára eru eru ekki orsök heldur afleiðing af mjög djúpstæðu ferli. Þéttbýliskraftarnir þrír: breiddarhagræði, stærðarhagkvæmni og flutningskostnaður hafa aukið framleiðni og bætt lífskjör hraðar á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Ef fólksflutningar ættu sér ekki stað kæmu kraftarnir fram sem svæðisbundinn mismunur á tekjum og myndun fátækrasvæða. Ef ráðist er í víðtækar aðgerðir til launajöfnunar skapar það hættu á atvinnuleysi ef launum á svæðum með lága framleiðni er haldið of háum. Fólksflutningar eru betri kostur lág laun eða atvinnuleysi! Niðurstaða

  18. Framtíðarstefnumörkun í byggðamálum hlýtur að miðast við vinna með en ekki á móti þessum þremur þéttbýliskröftum. Það er því kominn tími til þess að Reykjavík njóti sannmælis og byggðaaðgerðir gangi í þá átt að skapa meðvægi en ekki mótvægi við höfuðborgina. Þetta verður best gert með því að viðurkenna styrkleika borgarinnar og ýta undir þá. Og jafnframt að láta landsbyggðina njóta styrks borgarinnar. Byggðavandi Íslands getur hæglega snúist upp í það að fólk flytji af landinu fremur en milli staða. ...sem var á árunum 1870-1890 þegar engir þéttbýlisstaðir voru tiltækir hér innanlands til þess að skapa ný störf og nýja atvinnuvegi. Og fólkið fór til Vesturheims. Niðurstaða

More Related