1 / 52

Kynning LN og FT/FÍH

Kynning LN og FT/FÍH. Dagskrá. 1 . H elstu atriði í nýjum kjarasamningi Ákvarðanataka stjórnenda Ákvörðun launa kennara Skipulag v innutím a Fyrirspurnir og umræður. 1. Helstu atriði í nýjum kjarasamningi. Meginefni nýs kjarasamnings. Að svigrúm (sveigjanleiki) er aukið

ally
Download Presentation

Kynning LN og FT/FÍH

An Image/Link below is provided (as is) to download presentation Download Policy: Content on the Website is provided to you AS IS for your information and personal use and may not be sold / licensed / shared on other websites without getting consent from its author. Content is provided to you AS IS for your information and personal use only. Download presentation by click this link. While downloading, if for some reason you are not able to download a presentation, the publisher may have deleted the file from their server. During download, if you can't get a presentation, the file might be deleted by the publisher.

E N D

Presentation Transcript


  1. Kynning LN og FT/FÍH

  2. Dagskrá 1. Helstu atriði í nýjum kjarasamningi • Ákvarðanataka stjórnenda • Ákvörðun launa kennara • Skipulag vinnutíma • Fyrirspurnir og umræður

  3. 1. Helstu atriði í nýjum kjarasamningi

  4. Meginefni nýs kjarasamnings • Að svigrúm (sveigjanleiki) er aukið • Að dregið er úr miðstýringu • Að þáttur stjórnunar (starfsmanna) eykst

  5. Nýjar áherslur í starfi skólastjórans • Meira svigrúm við skipulag skólastarfs • Aukin starfsmannastjórnun • Ráðstöfun á launapotti • Nýting vinnustunda undir verkstjórn skólastjóra • Aukin vinnutími til stjórnunar

  6. Kennsla og röðun skólastjóra • Stig skóla fundin: Fjöldi nemenda skóla + helmingur af vikulegum heildarkennslustundafjölda skóla • Dæmi:150 nemendur + 180 kenndar stundir(deilt með 2) = 240 stiga skóli • Árleg kennsluskylda skólastjóra = 163 klst. (gr.1.4.1) • Dæmi: Ef kenndar 36 vikur þá 4,5 klst. á viku) • Ef stig skóla eru 250, er launaflokkur skólastjóra 408 (gr 1.4.5) og laun kr 248.484 (gr. 1.4.3)

  7. Útibú frá skóla • Hafi skólastjóri umsjón með útibúi sem rekið er í öðru byggðarlagi tekur hann röðun einum launaflokki ofar en ella. • Ef um fleiri en eitt útibú er að ræða og vegalengdir miklar skal um það fjallað í samstarfsnefnd.

  8. Millistjórnendur • Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra • Skólastjóri ákvarðar nánar hlutverk og starfskyldurhans. • Deildarstjóri er millistjórnandi, sem fer með mannaforráð Hann stýrir hluta af skólastarfi, deild eða skólastigi eftir nánari ákvörðun skólastjóra.  • Heimilt er að fela aðstoðarskólastjóra auk staðgengilsstarfans stjórnun deildar.

  9. Stundir til aukinnar stjórnunar • Tónlistarskóli þarf að ná 100 stigum til að eiga rétt á aukinni stjórnun. • Útreikningur: Stigafjöldi skóla er margfaldaður með 1,5 = þá fæst árlegur stundafjöldi til stjórnunar. • Dæmi: 240 stig x 1,5 =360 klst. • Hámark 1110 klst. á ári.

  10. Ráðstöfun stjórnunarkvóta • Skólastjóri ráðstafar stjórnunarkvóta: • Getur tekið alla auka stjórnun til sín. • Getur sett alla auka stjórnun á aðstoðarskólastjóra. • Getur sett alla aukastjórnun á deildarstjóra einn eða fleiri. • Getur ákvarðað blöndu af ofangreindu. • Aukna stjórnun má aðeins nýta til að draga úr kennsluskyldu stjórnanda, þ.e. til lækkunar á kennsluskyldu.

  11. Ráðstöfun stjórnunarkvóta • Skólastjóri getur tekið að sér aukna stjórnun gegn lækkun kennsluskyldu. Dæmi: • Árlegur stundafjöldi til stjórnunar = 360 klst. • Ef kennsluvikur eru 36 þá er vikulegur stjórnunarkvóti 10 klst. • Skólastjóri tekur 3 klst. á viku í aukna stjórnun sem dregst frá kennsluskyldu hans. • Kennsluskylda 4,5 klst.– 3 klst = 1,5 klst á viku.

  12. Staðgengilslaun • Í tónlistarskóla þar sem starfa a.m.k. 5 tónlistarskólakennarar • og ekki er ráðinn millistjórnandi • er heimilt að skipa einn af kennurum skólans staðgengil skólastjóra og tekur hann þá röðun tveimur launaflokkum ofar en ella.

  13. Endurmenntun - símenntun • Hver tónlistarskóli skal setja sér áætlun um endur- og símenntun tónlistarskólakennara. • Skólastjóri kynnir sér þarfir nemenda, skólans og óskir kennara áður en hann ákveður símennt-unaráætlun skólans og einstakra kennara • Símenntunaráætlun einstakra kennara skal byggjast á endurmenntunaráætlun og markmiðum skóla. • Námskeið skulu tengjast störfum tónlistarskóla-kennarans og nýtast honum í starfi. 

  14. Starfsmenntunarsjóður • Greiða ber 1,72% af föstum dagvinnulaunum tónlistarskólakennara í starfsmenntunarsjóð tónlistarskólakennara.

  15. 2. Ákvarðanataka stjórnenda

  16. Starfsmannastefna • Ákvörðun skólastjóra á að endurspegla raunhæft mat á störfum og starfsmönnum. • Sátt á vinnustað. • Samskipti - upplýsingaflæði. • Starfsmannasamtöl. Mikilvægt tæki til að ná sátt á vinnustað.

  17. Góð stjórnsýsla • Rannsóknarreglan • Meðalhófsreglan • Jafnræðisreglan • Kvörtunar-/kæruferill • Leiðbeiningarreglan • Upplýsingaskylda

  18. Rannsóknarreglan • Ákvarðanir stjórnenda í stjórnsýslu geta verið íþyngjandi fyrir starfmann. • Þess vegna ber stjórnenda að kynna sér alla málavexti áður en hann tekur ákvörðun.

  19. Meðalhófsreglan • Með meðalhófsreglunni er átt við að stjórnanda beri ekki að taka meira íþyngjandi ákvörðun en nauðsynlegt er hverju sinni.

  20. Jafnræðisreglan • Jafnræðisreglan vísar til þeirra skyldu stjórnenda að gæta samræmis og jafnræðis og mismuna ekki starfmönnum í neinu tilliti. • Þannig verður ákvörðun skólastjóra að grundvallast á þekktum leikreglum.

  21. Upplýsingaskylda • Forsendur ákvörðunar • Réttur einstaklingsins • Persónuvernd • Almenn upplýsingaskylda

  22. Kæruleiðir • Stjórnvaldi ber þegar það hefur tekið ákvörðun sína að benda á hvaða leiðir starfsmaður hefur til að kvarta eða eftir atvikum kæra ákvörðunina. Í þessu felst leiðbeiningarskylda stjórnandans. • Ef kennari er ósáttur við ákvörðun skólastjóra getur hann : • krafist útskýringar / rökstuðnings • kært stjórnsýslugjörning (opinberir starfsmenn) • vísað til stéttarfélags/samstarfsnefndar

  23. 3. Ákvörðun launa kennara

  24. Grunnröðun kennara Tónlistarskólakennari I: Hefur ekki lokið miðprófi. Raðist í lfl. 101 Tónlistarskólakennari II: Hefur lokið miðprófi. Raðist í lfl. 103 Tónlistarskólakennari III: Hefur lokið framhaldsprófi. Raðist í lfl. 109 Tónlistarskólakennari IV: Hefur lokið kennaraprófi eða BEd.prófi með tónmenntavali frá KHÍ. Raðist í lfl. 115

  25. Skýring með starfsheitaröðun Eftirtaldir raðast einnig í tónlistarkennara IV: • Þeir sem lokið hafa einleikaraprófi, burtfararprófi frá viðurkenndum tónlistarskóla eða hlotið samsvarandi menntun raðast ennfremur sem tónlistarskólakennari IV. • Einnig þeir sem ráðnir hafa verið í Sinfóníuhljómsveit Íslands að undangengnu prufuspili.

  26. Bókun 2 um starfsheitaröðun • Tónlistarskólakennari I og II sem við undirritun samnings þessa er í starfi sem tónlistarskólakennari í a.m.k. 33% starfshlutfalli og hefur starfað í a.m.k. 10 ár, skal þó eigi raðast neðar en í l.fl. 107.

  27. Bókun 3 um starfsheitaröðun • Samstarfsnefnd getur að fenginni ósk tónlistarskóla ákveðið að raða í starfsheitið tónlistarskólakennari IV þeim einstaklingum sem vegna reynslu sinnar, þekkingar og færni eru ráðnir til kennslu eða prófdæmingar á efstu stigum tónlistarnáms.

  28. Viðbótarlaun vegna framhaldsmenntunar • Fyrir hvert fullt námsár eftir lokapróf raðist tónlistarskólakennari IV tveimur launaflokkum ofar en ella fyrir allt að fimm námsár. • Með fullu námsári er átt við nám við viðurkenndan tónlistarháskóla sem svarar til 30 eininga náms á háskólastigi og er lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.Námið skal staðfest af viðkomandi kennslustofnun /kennara. • MA próf gefur 4 launaflokka og DR próf gefur 10 launaflokka (að meðt. MA launaflokkum). • Hámark 10 launaflokka.

  29. Viðbótarlaun vegna símenntunar • Tveir launaflokkar við 35 ára aldur. • Tveir launaflokkar við 40 ára aldur. • Tveir launaflokkar við 45 ára aldur. • Hámark 6 launaflokkar. • Forsendalaunaflokkahækkunar þessarar er staðfest þátttaka í símenntunaráætlun skóla.

  30. Almennt um pott • Kennurum er raðað skv. gr. 1.3.1. 1.3.3. og 1.3.4. á eigin forsendum • Launapottur úthlutað í samræmi við markmið og þarfir skólans sem geta breyst á milli ára

  31. Launapottur • Skólastjóri hefur til ráðstöfunar “launapott” til endurröðunar kennara í launaflokka. • Heimilt er að endurraða störfum m.t.t.: • Verkaskiptingar. • Staðsetningar starfa í skipuriti. • Ábyrgðar, faglegrar, fjárhagslegrar og stjórnunarlegrar. • Andlegs og líkamlegs álags. • Sérhæfni. • Persónulegrar færni,þar á meðal menntun og þekking.

  32. Launapottur - ráðstöfun • Skólastjóri ráðstafar launapotti. • Ráðstöfun er til eins árs í senn. • M.v. viðvarandi og stöðug verkefni. • Er til endurröðunar í launaflokka. • Kennari á ekki sjálfvirkt rétt á sömu röðun að ári. • Viðmið geta breyst á milli ára.

  33. Dæmi um úthlutun

  34. Launapottur - fjárhæð Fjárhæð til skóla: • 12% af launaflokki 115, 6. þrepi (17.520 kr.) • Margfölduð með fjölda stöðugilda kennara. • Fjöldi stöðugilda kennara: Heildarkennslustundafjöldi á ári (að meðtalinni stundakennslu), mínus kennslustundafjöldi stjórnenda, deilt með 650.

  35. Útreikningur á potti-dæmi

  36. Launapottur- Leikreglur Skólastjóri setur leikreglurnar: • Byggir ákvörðun á málefnanlegum rökum • Skilgreinir hvaða þættir hafa áhrif á ákvörðun hans og hvernig áhrif. • Gerir trúnaðarmanni grein fyrir hvaða þættir hafa áhrif og hvernig. • Gerir hverjum kennara grein fyrir mati á starfi og persónulegri færni – með samtali.

  37. Meira um leikreglur • Þegar skólastjóri ráðstafar launaflokkum (og vinnutíma) ber honum að upplýsa hluteigandi starfsmann eftir hvaða leikreglum hann ráðstafar þeim. Ef ákvörðunin byggist á mati á persónulegri færni ber honum, ef um er beðið, að upplýsa hlutaðeigandi um forsendur sínar og mat og rökstyðja skriflega. • Trúnaðarmaður getur beðið um upplýsingar um mat á einstaklingum. • Starfsmannasamtöl forsenda að skipulagi hvers skólaárs.

  38. Annaruppbót • Desember-og orlofsuppbót falla brott. • Kennari og skólastjórnandi í fullu starfi skulu fá greidda annaruppbót í lok hverrar annar, þ.e. í desember og júní, miðað við 30% af l.fl. 115,6 þrepi, í hvort skipti. • Nú kr. 43.799.

  39. Kennsluyfirvinna • Hver kennd klukkustund greiðist sem 1,5 klst í yfirvinnu í launaflokki viðkomandi: • Lfl. x 1,0385% x 1,5 = kennsluyfirvinna. • Kennsla umfram 10 kenndar yfirvinnustundir á viku reiknast: Lfl. x 1,0385% = tímakaup í yfirvinnu. • Kennsluyfirvinna skólastjóra reiknast: Lf. 401 x 1,0385% = tímakaup í yfirvinnu.

  40. Kennsluyfirvinna á vorönn 02 • Kennari fær greidda yfirvinna fyrir kennslu sem er umfram 361 klst á vorönn. • Kennsluyfirvinna dreifist á 5 mánuði • Kennsluyfirvinna greiðist með 50% álagi á tímakaup í yfirvinnu að 40 klst á mánuði en umfram það án álags

  41. 4. VINNUTÍMI

  42. Vinnutími • Í stað vikulegs vinnutíma kemur árlegur vinnutími. • Vinnan skiptist í eftirfarandi þætti: • Kennsla • Undirbúningur og úrvinnsla v/kennslu • Undirbúningur/frágangur fyrir og eftir kennslutíma • Tónleikar og tónfundir • Fagleg störf skv ákvörðun skólastjóra

  43. Fagleg störf kennara Fagleg störf kennara, s.s. kennsla, undirbúningur undir kennslu, mat á námsárangri, námsefnisöflun, umsjón með stofu og útlánum og viðhaldi hljóðfæra, umsjón með bóka- og nótnasafni, skólanámskrárvinna, gerð kennsluáætlana, gerð einstaklingsnámskráa, innra mat á skólastarfi, foreldrasamstarf, innbyrðis samstarf kennara og samstarf þeirra við aðra sérfræðinga, hljómsveitir og kóra, þátttaka í vinnuteymum og annað sem til starfs tónlistarskólakennara heyrir.

  44. Skipting vinnu 2001/2002

  45. Ráðstöfun vinnutíma • Skólastjóri ráðstafar vinnu kennara til kennslu og annarra starfa. • Auk kennslu, undirbúnings undir hana og starfsdaga er um að ræða tíma til faglegra starfa sem skólastjóri ráðstafar sbr. 2.1.6.2. • Tími til undirbúnings og úrvinnslu telst 30 mínútur að lágmarki fyrir hverjar 60 mínútur í kennslu.

  46. Tími sem skólastjóri ráðstafar • Meðal þeirra þátta sem skólastjórinn þarf að horfa til: • aukinn undirbúningstími • kennarafundir • samstarf milli kennara • foreldrasamstarf • gerð einstaklingsnámskráa Nýting þessara tíma getur verið breytileg frá viku til viku eða mánuði til mánaðar. • : • umsjón með stofu og útlán og viðhald hljóðfæra • umsjón með bóka- og nótnasafni • önnur fagleg störf

  47. Breyttur starfstími skóla • Starfstími nemenda getur ekki hafist fyrr en 20.ágúst að hausti og skal lokið ekki síðar en 5. júní að vori. • Starfstími kennara getur ekki hafist fyrr en 15. ágúst að hausti og skal lokið ekki síðar en 15.júní að vori. • Fjöldi skóladaga nemenda er ekki ákveðinn í kjarasamningum heldur ákveður skólinn fjölda kennsluvikna fyrir nemendur • Tekið upp vetrarorlof í samræmi við grunnskóla þar sem það á við.

  48. Skólanámskrá • Skólanámskrá tilgreinir kennsludaga, vetrarleyfi (sé það tekið í viðkomandi grunnskóla), tónleikahald og endurmenntunardaga • Skólanámskrá skal lögð fyrir skólanefnd og kynnt fræðsluyfirvöldum • Ath: Vetrarorlof getur verið að hausti, vori, tvískipt eða ekkert vetrarorlof.

  49. Kennsla á fleiri stigum • Sé kennt á fleiri en einu skólastigi þá hlutfallast kennslan. • Dæmi: Kennari í fyrst áfanga kennir 40 stundir á framhaldsnámi, 32 klst á miðnámi og 568 á grunnnámi. • 40 x 1,204 = 48,16 klst. + 32 x 1,057 = 33,82 klst. + 568 klst. = 649,98

  50. Kennsla á hausti 2001 og vorönn 2002 • Starfsáætlun vegna tímabils til áramóta 2001-2002 stendur óbreytt. • Á vorönn 2002 á kennari að kenna 5/9 af fullri kennsluskyldu og annari vinnu. • Í grunnnámi 361 klst. • Í miðnámi 342 klst. • Í framhaldsnámi 300 klst. • Um er að ræða virka daga innan kennslutímabils

More Related